5 misgóðar ástæður fyrir því að skrá EKKI vörumerki

28. maí 2026Vörumerki
Hér er fimm misgóðar ástæður fyrir því af hverju þú ættir mögulega ekki að sækja um skráningu á vörumerkinu þínu.
1. Þú vilt ekki einkarétt – Ef þú vilt að allir geti notað vörumerkið þitt fyrir hvaða vörur og þjónustu sem er ættir þú mögulega ekki að sækja um skráningu á vörumerkinu þínu.
2. Þú treystir fólki fullkomlega – Ef þú hefur fulla trú á því að fólk sé ávallt gott og fyrirtæki heiðarleg og að engum muni nokkurn tíma detta í hug að herma eftir vörumerkinu þínu, ættir þú mögulega að sleppa því að sækja um skráningu.
3. Almennt eða lýsandi merki – Ef vörumerkið þitt er almenns eðlis, alls ekki aðgreinandi eða sérkennandi, heldur lýsir bara viðkomandi vöru eða þjónustu á almennan hátt er mögulega ekki hægt að fá vörumerkið skráð og því kannski best að sleppa því að sækja um skráningu.
4. Merkið þitt er eftirlíking – Ef vörumerkið þitt er eftirlíking af öðru merki og þú vonast til að fólk ruglist á þínu merki og einhverju skráðu merki, ertu líklega að brjóta á rétti annarra og ættir frekar að hætta notkun á merkinu en að reyna að fá það skráð.
5. Þú átt ekki vörumerki – Þetta segir sig svolítið sjálft, er það ekki?
Staðreyndin er að skráning er einföld en mikilvæg fjárfesting sem getur skipt sköpum við uppbyggingu vörumerkja.
